12
 1-2  Drottinn! Hjálpa þú! Hinum trúuðu fækkar óðum. Hvar eru þeir sem hægt er að treysta?  3 Allir ljúga og iðka svik og pretti, en einlægnin virðist fokin út í veður og vind. 
 4-5  En Drottinn mun ekki fara mjúkum höndum um þá sem iðka ranglæti. Hann mun útrýma þessum lygurum sem segja: „Við skulum ljúga til um áform okkar, enda ráðum við sjálfir hvað við segjum!“  6 Þessu svarar Drottinn: „Ég mun rísa upp og verja þá kúguðu, fátæku og hrjáðu. Ég mun frelsa þá samkvæmt bænum þeirra.“  7 Loforð Drottins eru áreiðanleg. Hvert orð á vörum hans er satt og rétt eins og marghreinsað skíragull.  8 Drottinn, við vitum að þú munt varðveita þitt fólk frá verkum illra manna, þó svo þeir vaði alls staðar uppi og njóti heiðurs í landinu.