46
 1-2  Guð er mér hæli og styrkur, örugg hjálp í nauðum.  3 Þess vegna óttumst við ekki, þótt heimurinn farist og fjöllin steypist í hafið.  4 Hafið æði og freyði, fjöllin nötri og skjálfi! 
 5 Lækir gleðinnar streyma frá borg Guðs – frá heilögum bústað Guðs hins hæsta.  6 Hér býr Guð, hún mun ekki haggast. Þegar þörf er á, kemur Guð henni til hjálpar.  7 Þjóðir risu upp og létu ófriðlega en þegar Guð talaði varð heimurinn að þagna og jörðin nötraði. 
 8 Drottinn, hann sem ræður hersveitum himinsins, er hér! Hann er á meðal okkar! Hann, Guð Jakobs, er kominn til að hjálpa. 
 9 Komið og sjáið máttarverk hans á jörðinni.  10 Hann stöðvar styrjaldir um víða veröld, brýtur vopnin og kastar á eld. 
 11 „Þögn! Standið kyrr! Vitið að ég er Guð! Allar þjóðir heims syni mér lotningu.“ 
 12 Drottinn hersveita himinsins er hér, hann er á meðal okkar! Hann, Guð Jakobs, er hér til að frelsa!