100
 1 Öll veröldin fagni fyrir Drottni!  2 Þjónið Drottni með gleði, gangið fram fyrir hann með fagnaðarsöng! 
 3 Reynið að skilja hvað í því felst að Drottinn er Guð. Við erum handaverk hans! Fólkið sem hann leiðir. 
 4 Gangið inn um hlið hans með þakkargjörð, í forgarða hans með lofsöng. Þakkið honum, lofið nafn hans.  5 Því að Drottinn er góður! Miskunn hans varir að eilífu og trúfesti hans frá kynslóð til kynslóðar.