126
 1 Þegar Drottinn flutti þjóð sína aftur til Jerúsalem, heim úr herleiðingunni, þá héldum við að okkur væri að dreyma!  2 Við sungum og hlógum af gleði. Þá sögðu heiðnu þjóðirnar: „Drottinn hefur gert ótrúlega hluti fyrir þá!“  3 Já, undursamlega hluti! Hvílíkt undur! Hvílík gleði!  4 Hresstu okkur nú Drottinn, já gefðu okkur kröftuga gróðrarskúr! 
 5 Þeir sem sá með tárum skulu uppskera með gleðisöng.  6 Grátandi bera þeir sæðið til sáningar, en syngjandi koma þeir aftur og bera kornbindin heim!