130
 1 Ó, Drottinn, ég er í nauðum staddur, heyrðu hróp mitt!  2 Hlustaðu á mig! Svaraðu og hjálpaðu mér! 
 3-4  Drottinn, ef þú rifjaðir sífellt upp syndir okkar, hver fengi þá staðist? En þú fyrirgefur! Getum við annað en óttast þig og elskað?  5 Og þess vegna bið ég og vona og treysti hjálp Guðs, því að hann hefur lofað að hjálpa.  6 Næturverðirnir þrá nýjan dag, en ég þrái Drottin enn meira! 
 7 Ísrael, treystu Drottni því að hann er góður og miskunnsamur og veitir gnægð lausnar.  8 Hann mun sjálfur leysa Ísrael frá öllum misgjörðum hans.