3
 1 Sálmur eftir Davíð þegar hann flúði frá Absalon, syni sínum. 
 2 Ó, Drottinn, það eru svo margir á móti mér, svo margir sem gera uppreisn gegn mér.  3 Menn segja að Guð muni alls ekki hjálpa mér.  4 En, Drottinn, þú ert skjöldur minn, sæmd mín og von. Þú lætur mig bera höfuðið hátt, þrátt fyrir allt. 
 5 Ég hrópaði til Drottins og hann svaraði mér frá musteri sínu í Jerúsalem.  6 Þá lagðist ég fyrir og sofnaði í friði. Síðar vaknaði ég öruggur, því að Drottinn gætir mín.  7 Nú er ég óhræddur, jafnvel þótt tíu þúsund óvinir umkringi mig!  8 Ég mun hrópa til Drottins: „Drottinn, rís þú upp! Bjargaðu mér, þú Guð minn!“ Og hann mun slá óvini mína og brjóta tennur illvirkjanna. Hjálpin kemur frá Guði. Blessun hans hvílir yfir þjóð hans.