26
 1 Drottinn, láttu mig ná rétti mínum, því að ég hef kappkostað að halda boð þín og treyst þér af öllu hjarta.  2 Rannsakaðu mig yst sem innst, Drottinn, og prófaðu viðhorf mín og einlægni.  3 Afstaða mín til lífsins og allra hluta mótaðist hjá þér. Þú kenndir mér elsku og sannleika.  4 Ég forðast félagsskap hræsnara og þeirra sem tala lygi.  5 Ég hef andstyggð á samkundum syndaranna og stíg ekki fæti þar inn.  6 Ég þvæ hendur mínar, gef til kynna sakleysi mitt og geng að altari þínu  7 með þakkargjörð á vörum, minnugur máttarverka þinna. 
 8 Drottinn, ég elska hús þitt – helgidóminn þar sem dýrð þín birtist!  9-10  Láttu mér ekki farnast eins og syndurum og morðingjum eða þeim sem beita saklausa menn vélráðum og heimta mútur. 
 11 Nei, með slíkum á ég enga samleið. Ég geng hinn beina, en bratta veg sannleikans. Miskunna mér og frelsa mig.  12 Opinskátt og í áheyrn allra lofa ég Drottin, hann sem ver mig hrösun og falli.