67
 1-2  Ó, veittu okkur miskunn þína og náð! Leyfðu okkur að sjá þig og kærleika þinn.  3 Leyfðu öllum mönnum að fá að kynnast þér og þekkja hjálpræði þitt.  4 Allar þjóðir skulu lofa Drottin.  5 Þær skulu fagna og gleðjast, því að þú færir þeim réttlæti, og leiðir þær um réttan veg.  6 Allur heimurinn lofi þig, ó Guð! Já, allar þjóðir í heiminum flytji þér þakkargjörð!  7-8  Því að uppskera jarðarinnar varð mikil og Guð, hefur blessað okkur ríkulega. Og hann blessi okkur áfram svo að allar þjóðir megi óttast hann og elska.