75
 1-2  Þökk sé þér Drottinn! Máttarverk þín staðfesta umhyggju þína. 
 3 „Já,“ svarar Drottinn, „og þegar stundin er komin mun ég refsa öllum illgjörðamönnum!  4 Þótt jörðin nötri og íbúar hennar skjálfi af ótta, eru undirstöður hennar traustar, enda verk handa minna!“ 
 5 Ég sagði hinum hrokafullu að láta af drambi sínu og illmennunum að hætta sínum ögrandi augnagotum,  6 að láta af þrjósku og hroka.  7 Velgengni og völd getur enginn þakkað sér sjálfum,  8 allt eru það gjafir frá Guði. Hann upphefur einn, en niðurlægir annan.  9 Drottinn heldur á bikar fullum af freyðandi víni – það er dómurinn gegn illmennum heimsins. Þau skulu drekka hann í botn!  10 En ég mun vegsama Guð um aldur og ævi.  11 Styrkur hinna óguðlegu verður að engu, en réttlátir skulu ríkja með reisn.