82
 1 Guð stígur fram á himnum. Hann segir: „Réttur er settur!“ Síðan birtir hann úrskurð sinn gegn dómurum á jörðu. 
 2 Hve lengi ætlið þið, dómarar, að sniðganga réttlætið? Hve lengi ætlið þið að draga taum hinna ranglátu?  3 Kveðið upp réttláta dóma í málum hinna fátæku og föðurlausu, bágstöddu og þjáðu,  4 Losið fátæklingana úr klóm hinna guðlausu!  5 Þið eruð sljóir og fáfróðir og blindir. Þess vegna riðar þjóðfélagið til falls.  6 Ég hef kallað ykkur „guði“ og „syni hins hæsta“,  7 en í raun og veru eruð þið aðeins dauðlegir menn. Þið munuð falla rétt eins og aðrir af höfðingjunum. 
 8 Rís þú upp, ó Guð, og dæmdu jörðina. Þú hefur hana á valdi þínu og þjóðirnar eru í þinni hendi.