142
 1-2  Ég bið og bið til Drottins, stöðugt grátbæni ég hann.  3 Ég er hræddur og ráðvilltur. Þú einn þekkir leiðina framhjá gildrum óvina minna.  4 Enginn maður hugsar hlýtt til mín. Hvergi er góð ráð að fá. Öllum er sama um mig.  5 Því bið ég til Drottins og segi: „Drottinn, þú einn ert skjól mitt á jörðu, ég er hvergi öruggur nema hjá þér.  6 Heyrðu hróp mitt því að ég er mjög þjakaður. Frelsaðu mig frá þeim sem ofsækja mig, því að þeir eru mér yfirsterkari.  7 Leiddu mig úr þessum mikla vanda og þá mun ég lofa þig. Hinir guðhræddu munu þyrpast til mín og fagna með mér yfir hjálp þinni.“