15
 1 Drottinn, hver fær að leita skjóls og hælis í tjaldi þínu á fjallinu þínu helga? 
 2 Sá sem er hógvær og lifir réttlátu lífi.  3 Sá sem ekki baktalar náungann, leggur sig ekki eftir slúðri né gerir meðbróður sínum mein.  4-5  Sá sem andmælir illverkum og fyrirlítur þau. Sá sem heiðrar þá er fylgja Drottni í trúfesti og stendur við orð sín hvað sem það kostar.