16
 1 Bjarga mér, ó Guð, því að hjá þér leita ég skjóls.  2 Ég sagði við Drottin: „Þú ert minn Drottinn, þú ert mín eina hjálp.“  3 Ég þrái samfélag við trúaða fólkið í landinu, á því hef ég alla mína velþóknun.  4 Þeir sem kjósa sér annan guð uppskera þrengingu og tár. Ekki vil ég snerta við fórnum þeirra né nefna guði þeirra á nafn. 
 5 Drottinn er arfleifð mín. Hann er fjársjóður minn og fögnuður alla daga! Hann verndar allar eigur mínar.  6 Hann hefur gefið mér unaðsreit að erfð.  7 Ég lofa Drottin sem gefur mér góð ráð. Á nóttunni leiðbeinir hann mér og segir mér hvað gera skuli. 
 8 Drottinn hverfur mér aldrei úr huga. Af því að hann er með mér hrasa ég hvorki né fell.  9 Nú fagnar andi minn, líkami og sál  10 því að þú munt ekki skilja mig eftir meðal hinna dánu né leyfa að þinn elskaði rotni í gröfinni.  11 Þú hefur leyft mér að lifa og fagna. Ég mun njóta þeirrar miklu gleði að lifa með þér að eilífu!