53
 1-2  En sú heimska að segja: „Guð er ekki til.“ Hvers vegna segja menn slíkt? Vegna þess að hjörtu þeirra eru spillt og verk þeirra vond. 
 3 Guð lítur niður af himni. Hann rennir augum yfir mannanna börn. Skyldi nokkur vera hygginn og leita vilja Guðs?  4 Nei, allir hafa þeir snúið í hann baki. Þeir eru spilltir. Enginn þeirra gerir vilja Guðs, ekki einn einasti!  5 Þeir munu fá sinn dóm, illgjörðamennirnir sem ofsækja lýð Guðs.  6 Þeir munu þjást af ótta, jafnvel þegar engin hætta er! Guð mun á sínum tíma tvístra þeim. Hann hefur fellt sinn dóm og hafnað þeim. 
 7 Ó, að Guð kæmi frá Síon og frelsaði Ísrael! Þá munum við taka gleði okkar á ný.