54
 1 Sálmur eftir Davíð,  2 ortur þegar menn frá Síf reyndu að svíkja hann í hendur Sál konungs. 
 3 Komdu í mætti þínum, ó Guð, og bjargaðu mér! Verndaðu mig með krafti þínum!  4 Bænheyrðu mig,  5 því að ofbeldismenn hafa risið gegn mér – heiðingjar sem ekki trúa á þig, sækjast eftir lífi mínu. 
 6 En Guð er minn hjálpari. Hann er vinur minn!  7 Fyrir hans tilverknað mun illska þeirra koma þeim sjálfum í koll. Efndu loforð þitt, Guð, og þurrkaðu út þessa illvirkja. 
 8 Glaður kem ég fram fyrir þig með fórn mína. Ég lofa nafn þitt, Drottinn, því það er gott. 
 9 Guð hefur frelsað mig frá dauða og yfirbugað óvini mína.