98
 1 Syngið nýjan söng fyrir Drottin því að hann hefur unnið dásamlegt verk! Hann er sigursæll í mætti sínum og heilagleika. 
 2 Hann hefur tilkynnt sigur sinn – birt þjóðunum réttlæti sitt.  3 Hann hefur miskunnað lýð sínum, haldið loforð sín til Ísrael. Allur heimurinn sá er Guð bjargaði þjóð sinni.  4 Þess vegna hefja löndin fagnaðarsöng, syngja og lofa hann af öllu hjarta. 
 5 Syngið Drottni við undirleik hörpu.  6 Blásið í lúðra og básúnur gjalli! Hljómsveitin spili lofgjörðarlag. Hyllið Drottin, konunginn!  7 Hafið drynji og lofi Drottin! Jörðin og íbúar hennar reki upp fagnaðaróp! 
 8-9  Fossarnir klappi lof í lófa og klettarnir syngi gleðisöng, því að Drottinn mun dæma heiminn í réttlæti sínu og af réttvísi.