99
 1 Drottinn er konungur! Þjóðirnar skjálfi! Hásæti hans stendur miklu ofar englunum. Jörðin nötri í óttablandinni virðingu. 
 2 Drottinn ríkir með hátign á Síon, æðri öllum konungum á jörðu.  3 Þeir tigni hans háa og heilaga nafn! 
 4 Drottinn er voldugur konungur. Hann elskar réttlæti. Réttvísi og heiðarleiki einkenna stjórnarfar hans. Þannig ríkir hann í Ísrael.  5 Vegsamið Drottin, hinn heilaga Guð! Föllum fram við fótskör hans. 
 6 Móse og Aron voru prestar hans og Samúel spámaður hans. Þeir báðu til Drottins og hann bænheyrði þá.  7 Úr skýstólpa talaði hann við þá, þeir hlustuðu og hlýddu fyrirmælum hans.  8 Ó, Drottinn, þú ert okkar Guð! Þú svaraðir þeim og fyrirgafst syndir þeirra. 
 9 Tignið Drottin Guð! Tilbiðjið hann í Jerúsalem á fjallinu helga. Hann er heilagur.