113
 1 Hallelúja! Þið þjónar Drottins, lofið nafn hans.  2 Lofað sé nafn hans um aldur og ævi!  3 Vegsamið hann frá sólarupprás til sólarlags!  4 Því að hann er hátt upphafinn yfir þjóðirnar og dýrð hans er himnunum hærri. 
 5 Hver kemst í samjöfnuð við Guð hinn hæsta?  6 Hann situr hátt og horfir niður á himin og jörð.  7 Hann reisir hinn fátæka úr skítnum, leiðir hinn hungraða frá sorphaugnum  8 og fær þeim sæti með tignarmönnum!  9 Fyrir hans hjálp verður hún hamingjusöm móðir – konan sem ekki gat fætt manni sínum börn. Hallelúja! Lof sé Drottni!