114
 1 Í árdaga, þegar Ísraelsmenn flúðu Egyptaland, land hinnar framandi tungu,  2 varð Júda og Ísrael bústaður Guðs og ríki hans. 
 3 Hafið rauða sá þá koma og hopaði. Og áin Jórdan, hún stöðvaðist svo að þeir gátu gengið yfir.  4 Fjöllin hoppuðu eins og hrútar og hæðirnar sem lömb!  5 Hvað olli því, þú rauða haf, að þú hopaðir til beggja hliða? Og hvers vegna, áin Jórdan, stöðvaðist rennsli þitt?  6 Og þið fjöll, hvers vegna hoppið þið eins og hrútar og þið hæðir sem lömb? 
 7 Nötra þú jörð frammi fyrir augliti Drottins, Guðs Jakobs,  8 því að hann lét uppsprettu opnast á klettinum.