121
 1 Ég horfi til fjallanna, þar sem Jerúsalem rís. Hvaðan skyldi ég fá hjálp?  2 Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara himins og jarðar!  3-4  Hann mun aldrei láta mig hrasa eða falla. Hann gætir mín öllum stundum og sefur ekki á verðinum. 
 5 Sjálfur Drottinn gætir þín! Hugleiddu það! Hann verndar þig gegn öllu illu og er þér alltaf nær.  6 Hann verndar þig jafnt daga sem nætur.  7 Hann frelsar þig frá illu og heldur í þér lífinu.  8 Hann hefur augun á þér hvort sem þú gengur út eða inn, já hann varðveitir þig alla daga og að eilífu.