122
 1 Ég varð glaður þegar sagt var við mig: „Komdu! Förum í musterið, hús Drottins!“ 
 2-3  Við erum stödd í Jerúsalem og borgin er full af fólki.  4 Allur Ísrael – þjóð Drottins – er kominn til að tilbiðja og lofa Drottin samkvæmt reglu lögmálsins.  5 Sjáið! Þarna eru dómararnir í borgarhliðinu, þeir skera úr deilumálum fólksins. 
 6 Biðjið þess að friður haldist í Jerúsalem og að þeir sem hana elska njóti heilla og hamingju.  7 Ég bið að friður ríki umhverfis þig og hagsæld sé í höllum þínum,  8 já, vegna bræðra minna og vina sem hér búa.  9 Ég bið um hamingju þér til handa, Jerúsalem, vegna musteris Drottins sem í þér er.