125
 1 Þeir sem treysta Drottni eru eins og Síonfjall, þeir haggast ekki. 
 2 Fjöllin umhverfis Jerúsalem eru henni til verndar, eins er Drottinn, hann umlykur og verndar sitt fólk.  3 Ekki skulu óguðlegir drottna yfir trúuðum, né réttlátir þvingaðir til illverka. 
 4 Ó, Drottinn, gerðu vel við þá sem góðir eru, þá sem leitast við að gera vilja þinn, en útrýmdu illgjörðamönnum. Láttu frið og velgengni ríkja í Ísrael.