128
 1 Sæll er hver sá sem heiðrar Drottin, treystir honum og hlýðir. 
 2 Honum mun launað með velgengni og hamingju.  3 Kona hans hugsar vel um heimilið – og ekki mun þau skorta börn! Þarna sitja þau að matnum, þróttmikil og frísk eins og ung olífutré!  4 Þannig launar Guð þeim sem elska hann og treysta honum. 
 5 Drottinn blessi þig frá musterinu á Síon. Alla þína ævidaga muntu gleðjast yfir velgengni Jerúsalem  6 og eignast marga afkomendur. Friður Guðs sé yfir Ísrael!