129
 1 Allt frá bernsku var ég ofsóttur (það er Ísrael sem talar)  2 og misréttinu linnti ekki – en aldrei var ég þurrkaður út. Aldrei hefur óvinum mínum tekist að uppræta mig! 
 3-4  Þótt þeir húðstrýktu mig og tættu bak mitt, þá segi ég samt: „Drottinn er góður!“ Því að hann braut hlekkina sem illmennin höfðu fjötrað mig með. 
 5 Þeir sem hata Jerúsalem skulu verða til skammar og flýja.  6-7  Þeir skulu vera eins og gras á þaki – það skrælnar áður en það hefur vaxið og myndað fræ. Sláttumaðurinn mun grípa í tómt og sá sem bindur fær ekki neitt.  8 Þeir sem framhjá fara skulu ekki óska þér blessunar. En við ykkur segjum við: „Drottinn blessi þig!“