149
 1 Hallelúja! Lofið Drottin! Syngið honum nýjan söng. Lofsyngið honum öll þjóðin. 
 2 Ó, Ísrael, gleð þig yfir skapara þínum. Þið sem búið í Jerúsalem, fagnið yfir konungi ykkar!  3 Lofið nafn hans með gleðidansi og leikið fyrir hann á bumbur og gígjur. 
 4-5  Drottinn hefur unun af lýð sínum. Hann frelsar hina auðmjúku. Hinir trúuðu gleðjist með sæmd og syngi fagnandi í hvílum sínum. 
 6-7  Lofið hann, þið fólk hans! Framkvæmið refsingu hans á þjóðunum með tvíeggjuðu sverði.  8 Setjið konunga þeirra og fyrirmenn í járn og fullnægið á þeim skráðum dómi. Drottinn er vegsemd þjóðar sinnar. Hallelúja!