150
 1 Hallelúja! Lofið Drottin! Lofið hann í musteri hans, lofið hann á himnum.  2 Lofið hann fyrir máttarverk hans. Lofið hann fyrir mikilleik hátignar hans. 
 3 Lofið hann með lúðrablæstri, hörpu og gígju.  4 Lofið hann með strengjaleik og hjarðpípum.  5 Lofið hann með hljómandi skálabumbum, já og með hvellum skálabumbum! 
 6 Allt sem andardrátt hefur lofi Drottin! Einnig þú! Hallelúja!