123
 1 Ó, Guð, þú sem ríkir á himnum, ég hef augu mín til þín. 
 2 Við horfum til Drottins Guðs, þráum miskunn hans og náð, rétt eins og þjónninn mænir á húsbónda sinn og þernan á húsmóður sína. 
 3-4  Miskunna okkur, Drottinn, miskunna okkur. Við höfum fengið nóg af háði og spotti hinna hrokafullu.